Erlent

Borut Pahor kjörinn forseti Slóveníu

Borut Pahor var kjörinn forseti Slóveníu í gærdag. Þegar nær öll atkvæði höfðu verið talin hafði hann hlotið 67% atkvæða en keppinautur hans, Danilo Turk fráfarandi forseti, hlaut 33%.

Pahor, sem er fyrrum forsætisráðherra landsins, sigraði því nokkuð örugglega þrátt fyrir að hann styddi mjög óvinsælar aðgerðir ríkisstjórnar landsins um sparnað og niðurskurð vegna efnahagssamdráttarins í landinu.

Turk taldi hinsvegar að alltof langt hefði verið gengið í þessum aðgerðum stjórnarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×