Erlent

Hægt að ættleiða turnspírur á þaki dómkirkjunnar í Mílanó

Forstöðumenn dómkirkjunnar í Mílanó fara óhefðbundar leiðir í fjáröflun sinni fyrir nauðsynlegar endurbætur á þaki kirkjunnar.

Upp úr þaki kirkjunnar standa einar 135 litlar turnspírur. Þær hafa verið boðnar til ættleiðingar fyrir þá sem vilja styrkja kirkjuna fjárhagslega í endurbótunum á þakinu. Sá sem borgar 100.000 evrur eða ríflega 16 milljónir króna í kirkjusjóðinn mun fá nafn sitt grafið í stallinn á einni af spírunum.

Í frétt um málið á vefsíðu BBC segir að þegar hafi átta af þeim spírum sem í boði eru verið ættleiddar. Hinsvegar þarf dómkirkja á einum 25 milljónum evra að halda til að klára endurbæturnar. Sumar af turnspírunum eru svo illa farnar að þær eru um það bil að hrynja niður í næstu götu.

Þetta vandamál hrjáir raunar margar aðrar sögulegar byggingar á Ítalíu. Sjóður sá sem á að sjá um viðhald þeirra hefur hinsvegar orðið fyrir svo mikilli skerðingu á fjárframlögum frá hinu opinbera að forráðamenn þessara bygginga hafa neyðst til að nota ímyndunarafl sitt til að ná í fé eins og dómkirkjan í Mílanó er dæmi um.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×