Erlent

Útgöngubann í Bólivíu vegna manntals

Útgöngubann hefur verið sett á í Bólivíu vegna manntals sem þar fer fram í dag. Öll umferð um vegi landsins er bönnuð og áfengisbann er einnig í gildi í dag.

Þetta er fyrsta manntalið í landinu í 11 ár og hefur íbúum landsins verið skipað að vera innandyra þar til talningarmenn á vegum hins opinbera hafa heimsótt það með spurningalista sem fylla þarf út. Þeir sem ekki bíða eftir talningarmönnunum eiga sektir yfir höfði sér.

Talið er að íbúum Bólivíu hafi fjölgað úr 8,3 milljónum árið 2001 og upp í tæpar 11 milljónir í fyrra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×