Danska stjórnin hættir við lög um bann við kaupum á vændi 21. nóvember 2012 10:14
Danska ríkisstjórnin hefur alfarið hætt við að setja lög sem banna kaup á vændi í Danmörku. Slík löggjöf er þegar til staðar í Svíþjóð, Noregi og á Íslandi. Það var Morten Bödskov dómsmálaráðherra Danmerkur sem tilkynnti um þessa ákvörðun ríkisstjórnarinnar í morgun. Bödskov segir að helsta ástæðan fyrir því að hætt var við að banna kaup á vændi hefðu verið tilmæli frá Refsilagaráði Danmerkur. Ráðið telur að bann við vændiskaupum myndi ekki draga úr umfangi vændis í Danmörku og aðeins hafa þau áhrif að gera aðstæður vændiskvenna enn verri en þær eru fyrir. Þá segir Refsilagaráðið í umsögn sinni að reynsla Svía og Norðmanna, hvað bann við vændiskaupum varðar, er að erfitt sé að framfylgja löggjöfinni og því hafi hún ekki haft nein áhrif í þessum löndum. Bödskov segir að í stað laga um bann við vændiskaupum muni ríkisstjórnin m.a. beita sér fyrir auknum aðgerðum til að koma í veg fyrir mansal í Danmörku. Við þetta má bæta að stjórnarandstöðuflokkarnir í Noregi vilja að lög þar í landi um bann við vændiskaupum verði afturkölluð. Kannanir sýni að lögin hafi ekki dregið úr vændi heldur hafi vændiskonum þvert á móti farið fjölgandi, einkum í Osló. Þar að auki sýni rannsóknir að aðstæður vændiskvennanna hafa versnað að mun síðan lögin voru samþykkt.
Mest lesið Brotið á barni með því að loka það inni í einveruherbergi Innlent Öll spjót beinast að ÍBR vegna skipulagsleysis og „rugls í ræsingu“ Innlent Kraftaverk að ekki fór verr þegar bíll hafnaði ofan á tveimur Innlent Leitar kofans sem hvarf í heilu lagi Innlent Stórhættulegur framúrakstur við Ingólfsfjall Innlent Von á leifum fellibylsins Erin til landsins Veður Skiptar skoðanir um stækkun Þjóðleikhússins Innlent Þýska velferðarríkið standi ekki lengur undir sér Erlent „Heilt yfir“ friðsamleg Menningarnótt en nokkrir ofbeldisfullir Innlent Mölbraut rúðu í Þjóðleikhúsinu Innlent Fleiri fréttir Þýska velferðarríkið standi ekki lengur undir sér Á sjöunda tug drepin í stórtækum árásum Ríkisstjóri Illinois sakar Trump um valdníðslu Lést við tökur á Emily in Paris „Forsetinn var aldrei óviðeigandi við neinn“ Fjöldi látinn eftir rútuslys í New York Gerðu húsleit á heimili fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trump Staðfesta hungursneyð á Gasa Thunberg og félagar borin út úr norska seðlabankanum Hótar Hamas með helvíti og gjöreyðingu Gasa-borgar Rússar vilja koma að því að tryggja öryggi Úkraínu Erik Menendez fær ekki reynslulausn Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Rússar halda árásum áfram Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Mega neita þeim aðgengi sem bera keffiyeh Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Kirkjan í Kiruna komin á áfangastað Frambjóðandi sem ræddi um morð á hundi farinn í hundana Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Sjá meira