Erlent

Fann Curiosity líf á Mars?

Eins og sjá má hefur Curiosty leikið sér í sandinum á Mars.
Eins og sjá má hefur Curiosty leikið sér í sandinum á Mars. MYND/AFP
Stórtíðinda er að vænta frá geimfarinu Curiosity, sem nú er við rannsóknarstörf á plánetunni Mars.

Helsti stjórnandi verkefnisins, jarðfræðingurinn John Grotzinger, staðfesti í dag að Geimferðastofnun Bandaríkjanna, NASA, myndi kynna sögulegar niðurstöður úr rannsóknum Curiosity snemma í næsta mánuði.

Hann vildi þó lítið láta eftir sér hafa þegar blaðamenn forvitnuðust um niðurstöðurnar. Það eina sem Grotzinger gat staðfest var að greining á jarðvegi rauðu plánetunnar hefði framkallað vægast sagt athyglisverðar niðurstöður.

Líklegt þykir að Curiosity hafi uppgötvað lífræn efni á Mars.

Lífrænar sameindir eru efnasambönd kolefnis. Komi það á daginn að slíkar sameindir hafi fundist á Mars gefur það ákveðnar vísbendingar um að líf hafi eitt sinn verið á Mars.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×