Fjörutíu þúsund hafa fallið í Sýrlandi Kjartan Hreinn Njálsson skrifar 22. nóvember 2012 11:54 Þessi ljósmynd var tekin 17. nóvember síðastliðinn. Á henni má sjá nokkra Sýrlendinga syrgja fallinn uppreisnarmann. Hann lést í loftskeytaárás stjórnarhersins í stórborginni Aleppo. MYND/Ap
Stjórnarhermönnum í Sýrlandi tókst ekki að berja aftur stórsókn uppreisnarmanna í bænum Mayadeen í nótt. Stjórnarandstæðingarnir hertóku bækistöð stjórnarhersins við bæinn og ráða nú yfir stórum landsvæðum í austurhluta Sýrlands. Einnig hefur verið greint frá því að uppreisnarmennirnir hafi hertekið olíuríkt svæði, mitt á milli borgarinnar Deir Ezzor og landamæra Íraks. Sýrlensk útlagasamtök, staðsett í Bretlandi, tilkynntu í dag að átökin í Sýrlandi hefðu kostað rúmlega 40 þúsund manns lífið. Hátt í 28 þúsund óbreyttir borgarar hafa fallið í átökunum. Rúmlega 10 þúsund hermenn, það er, uppreisnarmenn og stjórnarhermenn, hafa farist í átökunum. Samtökin fá upplýsingar sínar frá andófsmönnum í Sýrlandi, læknum sem starfa á helstu sjúkrahúsum landsins og lögfræðingum. Tölur samtakanna stangast á við mat Sameinuðu Þjóðanna sem gera ráð fyrir að um 20 þúsund manns hafi fallið í átökunum. Stjórnarbyltingin gegn Bashar al-Assad, forseta Sýrlands, hófst í mars á síðasta ári.
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Fleiri fréttir Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Sjá meira