Erlent

Eyja sem merkt er á kort af Kyrrahafinu er í raun ekki til

Ástralskir vísindamenn segja að eyja í Kyrrahafinu sem merkt er inn á siglingar- og landakort og finnst á vefsíðunni Google Maps sé í rauninni ekki til.

Eyjan sem hér um ræðir heitir Sandy Island og samkvæmt fyrrgreindum kortum liggur hún mitt á milli Nýju Kaledóníu og Ástralíu.

Vísindamennirnir eru nýkomnir úr leiðangri á þessar slóðir og segja að eyjan sé ekki til og raunar sé um 1.400 metra sjávardýpi þar sem eyjan er skráð á fyrrgreind kort.

Nú hafin rannsókn á því af hverju Sandy Island var merkt inn á fyrrgreind kort. Það fylgir sögunni að eyjan sé ekki til á frönskum landakortum en Frakkar ráða Nýju Kaledóníu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×