Dallas-stjarna látin 24. nóvember 2012 09:51
Bandaríski leikarinn Larry Hagman lést í gær 81 árs að aldri en hann er hvað þekktastur fyrir að hafa leikið JR Ewing í bandarísku sjónvarpsþáttunum Dallas. Í rúm tíu ár á áttunda og níunda áratug síðustu aldar var Hagman vikulegur gestur á sjónvarpsskjám landsmanna í þáttunum um olíufjölskylduna í Dallas. Persóna Hagmans, JR Ewing var maðurinn sem allir elskuðu að hata og fylgdust menn hugfangnir með klækjabrögðum hans. Hagman þjáðist af krabbameini í lifur og lést hann á sjúkrahúsi síðdegis í gær að því er fram kemur í tilkynningu frá fjölskyldu hans. Þrátt fyrir að JR hafi farið afar illa með eiginkonu sína í Dallas þáttunum, hina drykkfelldu Sue Ellen, var Linda Gray, sem lék hina þjáðu eiginkonu, afar góð vinkona Hagmans og var hún við hlið hans þegar hann gaf upp öndina. Dallas þættirnir eiga fáa sína líka í sjónvarpssögunni en þegar mest lét fylgdust um 300 milljónir manna í 57 löndum með þáttunum sem gengu í þrettán ár. Þeir voru síðan endurvaktir á síðasta ári og þá snéri Hagman aftur í sínu þekktasta hlutverki. Stetson kúrekahatturinn varð að vörumerki JR og sjálfur átti Hagman rúmlega tvöþúsund slíka að eigin sögn. JR var nokkuð drykkfeldur og Hagman var það líka. Í ævisögu sinni lýsir hann því hvernig hann á tímabili hafi drukkið fimm kampavínsflöskur á hverjum einasta degi um margra ára skeið. Enda fór svo að hann þurfti í lifrarígræðslu árið 1995. Hann hélt þó áfram að drekka í laumi fram til ársins 2003.
Mest lesið Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Innlent Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Erlent Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Innlent Mælti sér mót við barn og réðst á það Innlent Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Innlent Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Innlent Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Innlent Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent Fleiri fréttir Segja vopnahléið enn í gildi þrátt fyrir árásir Dansar við úlfa-leikari dæmdur í lífstíðarfangelsi Hundruð þúsunda krefjast atkvæðagreiðslu um sjálfstæði Alberta Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Vopnahléið hangir á bláþræði Tugir látnir eftir sprengingu í flugeldaverksmiðju Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Minnst einn lést þegar keyrt var inn í mannfjölda í Leipzig Líkja forseta Taívan við rottu vegna Afríkuferðar Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Giuliani á sjúkrahúsi í alvarlegu ástandi Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir eða að fleiri hermenn fari heim Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Segir Nato nú reyna að skilja ákvörðun um að afturkalla herafla Segir stríðsrekstri lokið og smeygir sér framhjá reglum Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Sjá meira
Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Innlent
Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Innlent