Erlent

Notuðu táragas gegn 10 þúsund mótmælendum

Til óeirða kom í Bangkok höfuðborg Tælands í nótt þegar um tíu þúsund mótmælendur komu saman og kröfðust afsagnar forsætisráðherrans, Yingluck Shinawatra.

Mótmælin voru skipulögð af fólki sem sakar Yingluck, sem er systir forvera hennar í starfi Thaksin Shinawatra, um að vera strengjabrúða bróður síns.

Lögreglan notaði táragas gegn mótmælendunum sem reyndu að komast yfir varnargirðingar sem lokuðu af helstu stjórnsýslubyggingar borgarinnar.

Að minnsta kosti sjö lögreglumenn slösuðust en engum sögum fer af hve margir mótmælendur liggja sárir eftir.

Fleiri fréttir

Sjá meira

×