Erlent

Ekkert lát á úrhelli og flóðum á Bretlandseyjum

Óveður það sem herjað hefur á sunnanverðum Bretlandseyjum um helgina með stormi og miklu úrhelli mun færa sig norður á bóginn í dag.

Breska veðurstofan varar við áframhaldandi úrhelli og flóðahættu. Flóðaviðvaranir eru í gildi á um 280 stöðum á norðanverðu Englandi og í Wales.

Tvennt fórst vegna flóðanna um helgina og rýma þurfti um 800 hús. Einna verst var ástandið á Cornwall skaga en þar þurfti að rýma þorpið Millbrook. Um 40 hús í þorpinu eru umflotin vatni sem er hálfur annar metri á dýpt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×