Erlent

Bíræfnum þjófum tókst að stela 18 tonnum af súkkulaði

Bífæfnum þjófum tókst að ræna 18 tonnum af súkkulaði frá súkkulaðigerð í bænum Bludenz í Austurríki í síðustu viku.

Stórum flutningabíl með aftanívagni með slóvenskum númeraplötum var ekið upp að súkkulaðigerðinni og 33 vörubretti með súkkulaðinu voru lestuð í bílinn.

Bíllinn átti að flytja súkkulaðið til Tékklands og afferma það þar en ekkert hefur spurst til hans síðan á þriðjudag.

Í ljós er komið að númeraplöturnar á flutningsbílnum sem og þeir pappírar sem bílstjórinn var með í höndum voru falsanir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×