Erlent

Lík Yasser Arafats krufið í dag

Lík Yasser Arafats fyrrum leiðtoga Palestínumanna verður krufið í dag. Grunsemdir eru upp um að Arafat hafi verið byrlað hið geislavirka efni pólon og hann hafi látist af þeirri eitrun.

Sérfræðingar frá þremur löndum munu kryfja líkið eftir að grafhýsi Arafats í Ramallah verður opnað.

Sýni úr líkinu verða tekin og síðan send á rannsóknarstofur í Sviss, Frakklandi og Rússlandi. Eftir það verður Arafat jarðaður að nýju með viðhöfn síðdegis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×