Ekki lögbrot að loka á WikiLeaks BBI skrifar 27. nóvember 2012 18:07 Julian Assange er stofnandi Wikileaks.
Stærstu kortafyrirtæki heims brutu ekki samkeppnislög Evrópusambandsins þegar þau lokuðu á greiðslugátt sem notuð var til að safna fjárframlögum fyrir WikiLeaks. Þetta er niðurstaða Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Fyrirtækið Datacell, sem tekur við fjárframlögum til WikiLeaks, kvartaði til Framkvæmdastjórnarinnar vegna lokunarinnar. Miðað við fyrirliggjandi gögn þótti lokunin ekki fela í sér lögbrot. Niðurstaða Framkvæmdastjórnarinnar stangast á við niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur sem dæmdi í sumar að íslenska kortafyrirtækinu Valitor hefði verið óheimilt að loka á greiðslugáttir til WikiLeaks. Datacell hafði stefnt Valitor vegna lokunarinnar. Kortafyrirtækin lokuðu á greiðslugáttir til síðunnar eftir að WikiLeaks birti fjölda pósta úr sendiráðum Bandaríkjanna víðsvegar um heiminn. Valitor gerði slíkt hið sama en það var dæmt ólöglegt í Héraðsdómi Reykjavíkur. Nú lítur út fyrir að Evrópusambandið muni ekki taka undir þá niðurstöðu, en talsmaður framkvæmdastjórnar ESB sagði í dag að miðað við fyrirliggjandi upplýsingar hefðu fyrirtækin ekki brotið samkeppnislög. Hann tók hins vegar fram að framkvæmdastjórnin myndi fara yfir frekari upplýsingar frá Datacell áður en endanleg ákvörðun yrði tekin.Þetta kemur fram hjá fréttaveitunni Reuters.
Mest lesið 8,8 stiga skjálfti í Rússlandi: Flóðbylgjuviðvaranir gefnar út víða um Kyrrahaf Erlent „Hann stal henni“ Erlent Fjöldi ferðamanna slíkur að rotþróin ræður ekki við það Innlent Ísland og Palestína gera samkomulag um samstarf Innlent Lauma sér inn í útfarir og senda kirkjuvörðum fingurinn Innlent Ísland ekki í fararbroddi heldur fylgi öðrum í humátt á eftir Erlent Hvað á að gera um Verslunarmannahelgina? Innlent Brennisteinsdíoxíð gæti borist um suðvesturhornið Innlent Reyndi að skemma bíl og hljóp svo undan lögreglu Innlent Meintur þjófur leitaði til lögreglu vegna framkvæmdastjórans Innlent Fleiri fréttir 8,8 stiga skjálfti í Rússlandi: Flóðbylgjuviðvaranir gefnar út víða um Kyrrahaf Arabaríki og lönd ESB kalla eftir tveggja ríkja lausn og afvopnun Hamas Ísland ekki í fararbroddi heldur fylgi öðrum í humátt á eftir „Hann stal henni“ Bretar hyggjast viðurkenna Palestínu sem sjálfstætt ríki Færeyingar heita refsiaðgerðum gegn Rússlandi: „Eigum eftir að sjá hvernig efndirnar verða“ Gefa lítið fyrir afarkosti Trumps Ætlaði í höfuðstöðvar NFL Bandarískir trúboðar herja á einangraða ættbálka með drónum og sólarknúnum afspilunartækjum Trump um Epstein: „Hann stal fólki sem vann fyrir mig“ Íhuga að greiða sextíu milljarða til að friðþægja Trump Hyggjast greiða 60 þúsund á ári fyrir öll börn undir þriggja ára „Versta mögulega tilfelli hungursneyðar“ Maxwell biðlar til Hæstaréttar Á annan tug í valnum eftir að Rússar sprengdu fangelsi í loft upp Trump segir „alvöru hungursneyð“ ríkja á Gasa Fjórir látnir eftir skotárás á Manhattan Vill að skýrslutaka Murdochs fari fram eins fljótt og hægt er Tóku tugi af lífi eftir að hafa fengið lausnarfé Elsti Gallagher-bróðirinn ákærður fyrir nauðgun Krísa yfirvofandi: Þurr svæði stækka og þorna hraðar Fækkar dögunum sem hann gaf Pútín: „Ég held ég viti þegar svarið“ Vara við hópeitrunum af völdum THC eftir atvik í fyrra Þrír látnir eftir að lest fór af sporinu Ætla að breyta heræfingum eftir skammir frá systur Kims Semja um vopnahlé 64 prósent myndu þiggja gjaldfrjáls þyngdarstjórnunarlyf Skotárás í Bangkok: Skaut fimm til bana og fyrirfór sér Deilur Repúblikana um Epstein-skjölin magnast enn Gera tíu klukkustunda „mannúðarhlé“ á árásum Sjá meira