Erlent

Hugo Chavez leitar sér aftur lækninga á Kúbu

Hugo Chavez forseti Venesúela þarf aftur að leita sér lækninga á Kúbu en þar var hann skorinn upp vegna krabbameins fyrir nokkrum mánuðum síðan.

Chavez var endurkjörinn forseti Venesúela í október s.l. og hann á að taka formlega við embættinu að nýju þann 3. janúar n.k.

Í bréfi til þingsins í Venesúela segir Chavez að hann verði að leita sér lækninga að nýju vegna erfiðrar kosningabaráttu. Hann minnist ekki á krabbamein í bréfinu.

Í kosningabaráttunni hélt Chavez því fram að hann hefði læknast af krabbameininu og myndi sitja út kjörtímabilið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×