Erlent

Hobbitaæði grípur um sig á Nýja Sjálandi

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Frumsýningar Hobbitans var beðið með eftirvæntingu í gær.
Frumsýningar Hobbitans var beðið með eftirvæntingu í gær. Mynd/ AFP.
Algert Hobbitaæði hefur gripið um sig á Nýja Sjálandi en þar er búið að frumsýna nýjustu mynd Peters Jackson, sem fjallar um Hobbitann. Myndirnar, sem eru undanfari Hringadróttinssögu, verða alls þrjár talsins. Sú fyrsta þeirra var sýnd í Wellington bíóinu í morgun.

Allar stjörnurnar sem leika í myndinni voru viðstaddar sýninguna og tugþúsundir áhorfenda söfnuðust saman fyrir framan kvikmyndahúsið. Mestu aðdáendurnir tjölduðu jafnvel fyrir utan húsið til þess að vera sem næst rauða dreglinum þegar stjörnurnar gengu á honum.

Nýsjálendingar heiðra Hobbitann hvert sem litið er líkt og sjá má í veðurfréttatímanum hér fyrir neðan þar sem þulurinn klæðist álfafötum og talar álfatungumálið úr sagnaheimi Tolkien.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×