Erlent

Guðlast ekki lengur lögbrot í Hollandi

Guðlast verður ekki lengur refsivert í Hollandi en þarlend stjórnvöld ætla að nema lögggjöf um guðlast úr gildi. Þau telja lögin vera tímaskekkju á 21. öldinni.

Lögin voru sett á á millistríðsárunum á síðustu öld en engin hefur verið kærður fyrir brot á þeim undanfarin 50 ár þar til nýlega. Ástæðan er almennt frjálslyndi og umburðarlyndi hollensku þjóðarinnar.

Eina kæran vegna guðlasts í Hollandi kom fram í fyrra þegar hægrimaðurinn Geert Wilders var kærður fyrir niðrandi ummæli um múhammeðstrú. Hann var sýknaður á grundvelli tjáningarfrelsis síns.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×