Erlent

Stærsta flugeldasýning sögunnar í Kuwait

Kuwait er komið í heimsmetabók Guinness vegna þess að þar var haldin stærsta flugeldasýning í sögunni um helgina.

Sýning var í tilefni af því að 50 árin eru liðin frá því að Kuwait fékk nýja stjórnarskrá og nýtt þing samhliða henni.

Nær 80.000 flugeldar lýstu upp himininn í Kuwait en talið er að flugeldasýning þessi hafi kostað vel yfir milljarð króna. Tugþúsundir manna horfðu á þessa flugeldasýningu sem haldin var s.l. laugardagskvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×