Erlent

Grikkir fá tveggja ára frest í viðbót

Fjármálaráðherrar evrusvæðisins hafa samþykkt að gefa Grikkjum tveggja ára frest í viðbót, eða til ársins 2016, til að mæta kröfunum um niðurskurð í rekstri hins opinbera í Grikklandi.

Þetta var ákveðið á fundi ráðherranna í gærdag. Hinsvegar var ákveðið að fresta því að taka afstöðu til þess hvort Grikkir fengju greiddan næsta hluta af neyðarláni Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Evrópusambandsins. Ákvörðun um þá greiðslu verður tekin í næstu viku.

Upphæðin sem hér um ræðir er 31,5 milljarðar evra en nokkur þjóðþing landa innan evrusvæðisins eiga eftir að samþykkja þessa greiðslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×