Erlent

McCain vill að Clinton miðli málum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
John McCain segir að Clinton sé rétti maðurinn í verkefnið.
John McCain segir að Clinton sé rétti maðurinn í verkefnið. Mynd/ AFP.
Bandaríkin þurfa að senda hátt settan erindreka, eins og Bill Clinton fyrrverandi forseta, til þess að miðla máli á milli Ísrael og Palestínu. Þetta segir John McCain, öldungadeildarþingmaður Repúblikana. Hann segir að bandarísk stjórnvöld verði að sýna fram á það að þeim sé alvara þegar þau segi að þau vilji að friður haldist á Vesturbakkanum.

„Bandaríkin þurfa að sýna fram á það að þeim sé alvara þegar þau segja að þau vilji leysa deiluna á milli Ísraela og Palestínumanna," sagði McCain í samtali við CBS sjónvarpsstöðina.

„Ég myndi finna einhvern jafn hátt settan og Bill Clinton, fyrrverandi forseta, til þess að fara og miðla málum," sagði McCain. Hann bætti því við að hann vissi ekkert hvernig Clinton tæki þessari uppástungu en hann væri einfaldlega rétti maðurinn.

Hér má lesa meira um viðtalið við McCain.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×