Erlent

Óttast að þúsundir séu innilokaðir í Hoboken í New Jersey

Hersveitir frá bandaríska þjóðvarðliðinu hafa verið sendar til Hoboken hverfsins í New Jersey en þar er óttast að fleiri þúsund manns séu innilokaðir í rafmagnslausum íbúðum sínum eftir ofsaveðrið Sandy sem geisaði þar í gærdag.

Allar götur hverfisins eru enn á floti og komast þessir íbúar því hvorki lönd né strönd. Dawn Zimmer borgarstjóri í Hoboken segir að mikil þörf sé á aðstoð þjóðvarðliðsins til að bjarga þessum íbúum sem margir hverjir séu eldri borgarar sem þurfi lyf og aðra læknishjálp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×