Erlent

James Bond heillar Páfagarð

Benedikt páfi sextándi.
Benedikt páfi sextándi. MYND/afp
Svo virðist sem að ráðamenn í Páfagarði séu miklir aðdáendur breska spæjarans James Bond. Málgagn Páfagarðs, L'Osservatore Romano, fjallar sérstaklega um nýjustu kvikmyndina um Bond, Skyfall, en þar er breyskleika hetjunnar fagnað.

Þrátt fyrir syndsamlegt líferni er Bond hampað sem mannlegri hetju í nýjasta tölublaði L'Osservatore. Skyfall fær heilsíðu umfjöllun í blaðinu. Þar kemur fram að kvikmyndin sé ein sú allra besta um spæjarann.

Blaðið gengur þó ekki svo langt að hampa Bond sem kaþólskri hetju, líkt og gert var við Hómer Simpsons fyrir tveimur árum.

L'Osservatore Romano var stofnað fyrir rúmlega 150 árum. Um árabil var blaðið notað til að birta yfirlýsingar og annað efni frá Páfagarði. Það var síðan árið 2007 sem Benedikt páfi sextándi hvatti til breytinga í ritstjórn blaðsins og að umfjallanir tækju mið af hversdagslegri málum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×