Erlent

Fylgið jafnt fyrir síðustu kappræðurnar

Ný skoðanakönnum hjá NBC sjónvarpsstöðinni og Wall Street Journal sýnir að fylgi þeirra Baracks Obama og Mitt Romney mælist nú jafnt meðal líklegra kjósenda í Bandaríkjunum og fá þeir 47% atkvæða hvor.

Þriðja og síðasta kappræða þeirra í sjónvarpi verður í kvöld en umræðuefnið að þessu sinni eru utanríkismál.

Í svokölluðum sveifluríkjum er nú lítill munur á frambjóðendunum. Í könnun CNN sjónvarpsstöðvarinnar kemur fram að í Flórída er Obama með 49% fylgi á móti 48% hjá Romney.

Í Ohio er Obama með 46% á móti 43% hjá Romney og í Virginíu eru þeir hnífjafnir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×