Erlent

Þriðju kappræður forsetaframbjóðendanna í beinni á Vísi

Kjartan Hreinn Njálsson skrifar
Kappræðurnar fara fram í Lynn-háskóla í Flórída.
Kappræðurnar fara fram í Lynn-háskóla í Flórída. MYND/AFP
Vísir sýnir beint frá þriðju og síðustu kappræðum Baracks Obama, Bandaríkjaforseta, og Mitt Romney, forsetaefni Repúblikanaflokksins, sem fram fara klukkan eitt í Flórída í nótt. Fyrri einvígi frambjóðendanna eru einar eftirminnilegustu kappræður seinni tíma.

Aðeins eru rúmar tvær vikur til kosninga en Bandaríkjamenn munu greiða atkvæði þann 6. nóvember næstkomandi. Eins og staðan er nú mælast frambjóðendurnir með jafnt fylgi á landsvísu.

Utanríkismál verða til umræðu í Lynn-háskólanum í kvöld. Fundarstjóri verður Bob Schieffer, fréttamaður CBS.

Hér fyrir neðan má sjá áætlað fylgi frambjóðendanna en einnig er hægt að velja hvert ríki fyrir sig til að sjá fjölda kjörmanna.



Utanríkismál eru sannarlega umfjöllunarefni kvöldsins, engu að síður eru efnahagsvandamál Bandaríkjanna enn stærsta kosningamálið. Þannig munu Obama og Romney reyna eftir mesta megni að heimfæra utanríkismálin og það með vísunum í atvinnusköpun.

Árásin á ræðismannsskrifstofu Bandaríkjanna í Líbíu í síðasta mánuði er enn mikið hitamál í Bandaríkjunum. Öryggismál eru sögð hafa verið í ólestri við skrifstofuna. Fjórir Bandaríkjamenn létu lífið í árásinni, þar á meðal Christopher Stevens, sendiherra Bandaríkjanna í Líbíu.

Um tíma var óljóst hvort að atlagan að sendiráðinu hafði verið skipulögð af hryðjuverkasamtökum eða afleiðing fjölmennra mótmæla sem spruttu upp í kjölfar bandarískrar áróðursmyndar sem stefnt var gegn múslímum.

Romney hefur ítrekað bent á að ríkisstjórn Obama hafi ekki verið samstíga í eftirköstum árásarinnar. Í síðustu kappræðum sótti Romney hart að Bandaríkjaforseta vegna málsins. Inngrip fundarstjóra í það skipti, þó umdeilt sé, sló Romney út af laginu og eru margir Repúblikanar á því að gagnrýni hans hafi verið réttmæt. Því mun árásin í Benghazi vafalaust verða fyrirferðamikil í Flórída í kvöld.

Aftur á móti mun Obama saka Romney um að nýta harmleikinn í Benghazi sér til framdráttar. Þá mun hann þrýsta á Romney að útskýra hvernig hann hefði tekist á við Arabíska vorið sem forseti Bandaríkjanna.

Sem fyrr verða málefni Íran til umfjöllunar. Bandaríska fréttablaðið The New York Times birti á dögunum umdeilda grein þar sem greint var frá fyrirhuguðum viðræðum yfirvalda í Bandaríkjunum og Íran vegna kjarnorkuáætlun þess síðarnefnda. Slíkar viðræður eru ekki á döfinni samkvæmt stjórn Obama.

Romney hefur margoft lýst yfir stuðningi við utanríkisstefnu Ísrael og mögulegum hernaðaraðgerðum gegn Íran. Obama mun nýta sér öfgakennt orðalag Repúblikans um Íran og benda á þann gríðarlega kostnað sem fylgir mögulegum átökum við Íran. Þar að auki eru Bandaríkjamenn orðnir langþreyttir á sífelldu stríðsbrölti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×