Erlent

Ráðist á forsætisráðherra Finnlands

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Jyrki Katainen varð fyrir árás í dag.
Jyrki Katainen varð fyrir árás í dag. Mynd/ AFP.
Karlmaður réðst á Jyrki Katainen, forsætisráðherra Finnlands, í borginni Åbo í dag og reyndi að stinga hann með hnífi. Katainen slapp ómeiddur úr árásinni. Það voru lífverðir forsætisráðherrans sem gripu inn í og komu í veg fyrir að árásarmanninum tækist að vinna honum mein. Maðurinn var fluttur burt í handjárnum, eftir því sem fram kemur á vef norska ríkisútvarpsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×