Erlent

Obama sigraði í síðustu kappræðunum

Barack Obama Bandaríkjaforseti stóð uppi sem sigurvegari í síðustu kappræðum hans og Mitt Romney í gærkvöldi.

Könnun sem CNN sjónvarpsstöðin gerði strax að loknum kappræðunum sýnir að 48% sjónvarpsáhorfenda töldu að Obama hefði staðið sig betur en 40% töldu að Romney hefði staðið sig betur.

Umræðuefnið að þessu sinni voru utanríkismál og deildu þeir Obama og Romney hart um ýmislegt á þeim vettvangi. Greinilegt var að Obama bjó yfir mun meiri þekkingu á þessum málaflokki en Romney.

Þeir voru hinsvegar sammála um tvennt, það er að Bandaríkjamenn ættu ekki að beita hervaldi í Sýrlandi og að Bandaríkjamenn ættu að koma í veg fyrir að Íran kæmi sér upp kjarnorkuvopnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×