Erlent

Trúverðugleiki og orðspor BBC er í tætlum

Trúverðugleiki og orðspor hinnar virtu bresku sjónvarpsstöðvar BBC er í tætlum.

BBC stöðvaði umfjöllun Newsnight, eins virtasta fréttaþáttar BBC, um að ein vinsælasta stjarna stöðvarinnar á síðustu öld, Jimmy Savile, var í raun einn af verstu barnaníðingum í sögu Bretlands.

Ritstjóri Newsnight hefur verið rekinn úr starfi og forstjóri BBC verður kallaður fyrir þingnefnd vegna málsins í dag. Breska lögreglan rannsakar nú málið en í fyrstu tilkynningu hennar segir að fórnarlömb Savile gætu verið um 200 talsins, að mestu unglingsstúlkur undir lögaldri, meðan að Saville stjórnaði þættinum Top of the Pops.

Savile sem lést í fyrra var á sínum tíma aðlaður fyrir störf sín í þágu BBC.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×