Erlent

Eldsvoði í sjúkrahúsi kostaði 12 lífið

Frá vettvangi í Suður-Taívan í dag.
Frá vettvangi í Suður-Taívan í dag. MYND/AP
Að minnsta kosti tólf sjúklingar fórust þegar eldur kom upp í sjúkrahúsi í Suður-Taívan snemma í morgun.

Fórnarlömbin voru öll sjúklingar en eldurinn kom upp á sjúkradeild fyrir aldraða. Nær allir þeir sem létust köfnuðu í reyknum.

Hátt í sextíu aðrir særðust í eldsvoðanum. Þrátt fyrir þessar hörmungar var mikið þrekvirki unnið af hálfu slökkviliðsmanna og starfsmanna spítalans, þeim tókst að bjarga á annað hundrað manns út úr byggingunni.

Eldsupptök liggja ekki enn fyrir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×