Donald Trump boðar stórfrétt um Barack Obama 24. október 2012 06:06
Hinn litríki athafnamaður Donald Trump hefur boðað stórfrétt um Barack Obama í dag, frétt sem Trump segir að muni mögulega hafa áhrif á forsetakosningarnar. Trump lét þessi orð falla í sjónvarpsþætti á Fox sjónvarpsstöðinni í upphafi vikunnar. Þar sagði hann að um risavaxna frétt væri að ræða. Fréttin væri stór á alla kanta og enda. Hinsvegar sagði hann ekki neitt um innihald hennar. Trump hefur hingað til verið framarlega í flokki þess fólks sem telur að fæðingarvottorð Barack Obama sé falsað og að Obama hafi í raun fæðst í Kenía. Væri það rétt ætti Obama enga möguleika á að taka þátt í bandarískum forsetakosningum. Raunar gekk Trump svo langt að ráða menn til að rannsaka fortíð Obama á Hawai síðasta vor en engar fréttir hafa enn borist af þeirri rannsókn. Í samtali við vefsíðuna TMZ segir Trump að hann muni greina frá stórfrétt sinni um hádegisbilið vestan hafs. Hann vildi ekki segja hvort hann hefði rætt við kosningastjórnir Obama og Mitt Romney um þessa frétt sína. Við þetta má svo bæta að breska blaðið Daily Mail birti á vefsíðu sinni nú fyrir hádegið að risafrétt Trump væri að hann hefði undir höndum skilnaðarskjöl þeirra Obama og eiginkonu hans Michelle. Þetta hefur blaðið eftir vini Trump. Svo virðist sem forsetahjónin hafi verið á barmi skilnaðar einhvern tímann í 20 ára löngu hjónabandi sínu. Gekk málið svo langt að skilnaðarskjölin voru búin til en síðan virðist þeim hafa snúist hugur.
Mest lesið Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent Fleiri fréttir Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Yfirhershöfðingja Úkraínuhers vikið úr embætti Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Sjá meira