Erlent

Svíar velta vöngum yfir tréstyttum af nöktum konum

Sænskur veiðimaður rak upp stór augu nýlega þegar hann var á fuglaveiðum í skóglendi á einni af eyjunum í sænska skerjagarðinum fyrir utan Söderham.

Hann rakst þar á nokkrar útskornar tréstyttur af nöktum kvenmönnum. Veiðimaðurinn tók myndir af þessum styttum og setti á netið.

Þessar myndir fóru um eins og eldur um sinu í Svíþjóð en áður en aðrir komu til eyjunnar til að skoða stytturnar voru þær horfnar.

Svíar velta nú mikið vöngum yfir því hver hafi gert þessar tréstyttur og afhverju þeim var komið fyrir á eyjunni en hingað til hafa engin svör fengist við þeim spurningum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×