Erlent

Þungun vegna nauðgunar er vilji guðs

Ummæli sem Repúblikaninn Richard Mourdock lét falla í kappræðum í Indianaríki hafa valdið miklu fjaðrafoki í Bandaríkjunum síðasta sólarhringinn.

Mourdock , sem berst fyrir sæti í Öldungadeildinni, sagði að þungun vegna nauðgunar væri guðsgjöf og vilji drottins.

Demókratar voru fljótir að fordæma ummælin.

Aðeins eru nokkrir mánuðir frá því að annar Repúblikani, Todd Akin, hélt því fram að líkamar kvenna gætu komið í veg fyrir þungun, það er, ef nauðgunin var „sönn."

Mitt Romney, forsetaefni Repúblikana, hefur fordæmt ummæli þeirra beggja. Hann sagði að ríkisstjórn sín myndi ekki vera á móti fóstureyðingu í kjölfar nauðgunar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×