Erlent

Loftárásir á Gazasvæðinu í nótt

Frá Gazasvæðinu í dag.
Frá Gazasvæðinu í dag. MYND/AFP
Ísraelsher stóð fyrir loftárásum á palestínsku borgina Rafah á Gazasvæðinu í nótt. Að minnsta kosti fjórir Palestínumenn létust í árásinni.

Samkvæmt upplýsingum frá yfirvöldum í Ísrael voru mennirnir meðlimir Andspyrnuhreyfingar Íslams, Hamas.

Talið er að mennirnir hafi verið að undirbúa mikla flugskeytaárás á Ísrael.

Palestínumenn svöruðu loftárásum Ísraela með því að skjóta rúmlega fimmtíu loftskeytum yfir landamæri Ísraels í morgun. Þrír farandverkamenn særðust í aðgerðunum.

Sem fyrr andar köldu milli Ísraela og Palestínumanna. Mikill titringur hefur verið á Gaza síðasta sólarhringinn. Ísraelskur landamæravörður særðist lífshættulega í sprengjutilræði í gær. Palestínskir skæruliðar hafa lýst yfir ábyrgð á árásinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×