Erlent

Hryllingsmynd sýnd fyrir mistök

Mikið óðagot myndaðist við kvikmyndahús í Nottingham í gær. Foreldrar höfðu fjölmennt með börn sín á sýningu nýjustu Madagascar teiknimyndarinnar. Um 25 fjölskyldur voru í kvikmyndasalnum þegar sýningin hófst.

Það voru þó ekki glaðlynd hitabeltisdýr sem birtust á tjaldinu, heldur yfirnáttúrulegir draugar og forynjur.

Um stund horfðu börnin á fyrstu atriði hryllingsmyndarinnar Paranormal Activity 4.

Þar mátti meðal annars sjá blóðugt lík sem fleygt var í myndavélina.

Fjölskyldurnar forðuðu sér út úr kvikmyndasalnum og hafa stjórnendur kvikmyndahússins beðist afsökunar á atvikinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×