Erlent

Mætti í sína eigin kistulagningu

Gilberto Araujo
Gilberto Araujo
Kistulagning í norðausturhluta Brasilíu fór úr skorðum á dögunum eftir að hinn látni mætti á svæðið og tilkynnti ástvinum að hann væri sannarlega á lífi.

Hinn fjörutíu og eins árs gamli Gilberto Araujo var úrskurðaður látinn af dánardómstjóra í Bahia-héraði í síðustu viku.

Araujo hafði ekki séð fjölskyldu sína í rúma fjóra mánuði. Þegar dánartilkynningin birtist í fjölmiðlum hafði hann þó samband við félaga sinn til að færa sönnur á að hann væri enn á lífi. Vinurinn afskrifaði símtalið sem ósmekklegt prakkarastrik.

Brasilíski fjölmiðillinn O Globo hefur eftir móður Araujo að mikill glundroði hafi myndast þegar sonurinn birtist í kistulagningunni. Þá hafi nokkrir fallið í yfirlið.

Líklegt þykir að dánardómstjórinn beri sökina á þessu undarlega atviki. Hann er sagður hafa farið nafnavillt þegar kennsl voru borin á líkið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×