Umfangsmikill þjófnaður á nasistaskjölum úr danska þjóðskjalasafninu 25. október 2012 07:01
Lögreglan í Kaupmannahöfn hefur handtekið tvo menn vegna umfangsmikils þjófnaðar á skjölum og gögnum úr danska þjóðskjalasafninu. Talið er að þjófnaður þessi hafi verið vel skipulagður og staðið yfir í ein 10 ár. Talið er að þjófnaður þessi hafi verið vel skipulagður og staðið yfir í ein 10 ár. Mennirnir tveir hafi passað sig á því að taka aðeins fáein skjöl í einu úr lestrarsal safnsins. Annar þessara manna er tengdur Hells Angels glæpagenginu. Skjölin og gögnin sem stolið var eru frá þeim tíma þegar nasistar hersátu Danmörku í seinni heimsstyrjöldinni. M.a. er um að ræða dómsskjöl úr réttarhöldum, lögregluskýrslur, dagbækur hermanna og orður sem nasistarnir veittu dönskum samstarfsmönnum sínum. Þá hefur komið fram í dönskum fjölmiðlum að mikið af skjölum sem stolið var tengjast ákveðnum dönskum samstarfsmanni nasista og hugsanlega hafi þjófanir viljað stroka út fortíð hans. Talið er að einhver hluti af þessum skjölum og gögnum hafi verið seldur nýnasistum en á heimilum beggja mannanna fannst mikið af minjagripum og fánum frá tímum nasista í Þýskalandi. Þar sem annar mannanna er tengdur Hells Angels glæpagenginu er ekki útilokað að þau samtök hafi staðið fyrir sölu á þýfinu. Asbjörn Hellum þjóðskjalavörður segir að um ómetanleg og ómissandi skjöl og gögn fyrir danska sögu sé að ræða. Þjófnaðurinn kom í ljós í upphafi mánaðarins en rannsókninni hefur verið haldið leyndri svo hægt væri að endurheimta eitthvað af þýfinu. Í dönskum fjölmiðlum segir að tekist hafi að endurheimta töluvert af skjölunum í fjórum húsleitum sem gerðar voru í Kaupmannahöfn í gærkvöldi.
Mest lesið Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Innlent Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Innlent Fyrstu þreifingar áramótaveðurspár Veður Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Fær íshellaferð ekki endurgreidda Innlent Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Erlent Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Innlent Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Gefur lítið fyrir staðhæfingar um nýfallið hitamet Veður Fleiri fréttir Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Segir unnið að því að móta sameiginlega nálgun Bandaríkjanna, Úkraínu og Evrópu Sýknaður af nauðgun eftir að hafa verið skimaður fyrir sjaldgæfri svefnröskun Málið sem Trump getur ekki losað sig við Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Fóru um borð í vélvana rússneskt skip Baulað á Albanese á minningarathöfn á Bondi-strönd Kvarta yfir ritskoðun Epstein-skjala: „Við vitum ekki hvað við vitum ekki“ Níu skotnir til bana á krá Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Sjá meira