Erlent

Upprættu umfangsmikinn smyglhring á Spáni

Umfangsmikill smyglhringur á Spáni hefur verið upprættur með samvinnu lögreglunnar í nokkrum Evrópulöndum en aðgerðinni var stjórnað af Europol.

Búið er að handtaka 27 manns að mestu Spánverja og Kólombíumenn í Navarra héraðinu þaðan sem smyglinu var stjórnað.

Um var að ræða smygl á fleiri tonnum af hassi frá Spáni til Hollands þar sem skipt var á hassinu fyrir amfetamín sem var svo aftur flutt til Spánar og selt þar.

Rannsókn málsins hófst fyrir ári siðan þegar franska lögreglan tók flutningabíl á leið til Hollands en í honum voru tæplega 700 kíló af hassi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×