Kosið um lögleiðingu kannabis í þremur ríkjum Bandaríkjanna 25. október 2012 07:28
Samhliða forsetakosningunum í Bandarikjunum munu kjósendur í þremur ríkjum þar í landi kjósa um hvort lögleiða eigi notkun kannabis eða ekki. Notkun kannabis til lækninga hefur þegar verið lögleidd í 17 ríkjum Bandaríkjanna. Sú löggjöf er í andstöðu við alríkislög í Bandaríkjunum sem kveða á um að kannabis sé ólöglegt fíkniefni. Þann 6. nóvember hinsvegar munu kjósendur í Washington, Oregon og Colorado kjósa um hvort lögleiða eigi kannabis þannig að fíkniefnið fái sömu stöðu og áfengi. Í frétt um málið í Washington Post kemur fram að samkvæmt skoðanakönnunum í bæði Washington og Colorado er meirihluti fyrir því að lögleiða notkun kannabis. Staðan er óljósari í Oregon. Þar að auki virðist fylgi við slíka lögleiðingu ekki síður ná til kjósenda Repúblikana en Demókrata. Raunar hafa leiðtogar Repúblikana í þessum ríkjum mælt með lögleiðingu kannabis. Skoðanakönnun sem Gallup gerði nýlega sýnir að um helmingur Bandaríkjamanna vill að kannabis verði gert löglegt og þá ekki bara til lækninga. Í sambærilegri könnun fyrir ári síðan mældist 46% stuðningur við lögleiðingu kannabis. Þeir sem styðja lögleiðingu horfa einkum til þess að hið opinbera gæti haft töluverðar skatttekjur af kannabissölunni.
Mest lesið Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Innlent Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Innlent Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Fyrstu þreifingar áramótaveðurspár Veður Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Fær íshellaferð ekki endurgreidda Innlent Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Erlent Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Innlent Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Gefur lítið fyrir staðhæfingar um nýfallið hitamet Veður Fleiri fréttir Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Segir unnið að því að móta sameiginlega nálgun Bandaríkjanna, Úkraínu og Evrópu Sýknaður af nauðgun eftir að hafa verið skimaður fyrir sjaldgæfri svefnröskun Málið sem Trump getur ekki losað sig við Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Fóru um borð í vélvana rússneskt skip Baulað á Albanese á minningarathöfn á Bondi-strönd Kvarta yfir ritskoðun Epstein-skjala: „Við vitum ekki hvað við vitum ekki“ Níu skotnir til bana á krá Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Sjá meira