Erlent

Konunglegt brúðkaup í Svíþjóð á næsta ári

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Parið er ákaflega lukkulegt að sjá.
Parið er ákaflega lukkulegt að sjá.
Madeleine prinsessa Svíþjóðar, yngri dóttir Karls Gústavs konungs mun giftast unnusta sínum, Christopher O´Neill næsta sumar. Parið tilkynnti trúlofun sína í dag í myndskeiði sem konungsfjölskyldan sendi frá sér.

„Ég bað Madeleine nýlega. Sem betur fer sagði hún já," segir Christopher í myndskeiðinu. Madeleine segir að brúðkaupið fari fram næsta sumar. Af myndskeiðinu að dæma er augljóst að parið er hamingjusamt yfir ráðstöfuninni.

Skammt er síðan Viktoría krónprinsessa, systir Madeleine, gekk að eiga Daniel Westling, unnusta sinn.



Förlovning / Engagement from Kungahuset on Vimeo.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×