Katrín Ómars: Við getum gert hluti sem kosta ekki mikinn pening Kolbeinn Tumi Daðason á Laugardalsvelli skrifar 25. október 2012 21:48 „
Þetta er svona tilfinning þegar maður hefur verið með markmið, stefnt að einhverju, búinn að vinna að því og nær því. Það er sælutilfinning," sagði Katrín Ómarsdóttir miðjumaður Íslands í leikslok. Katrín átti góðan leik á miðjunni hjá Íslandi og hefur verið í lykilhlutverki í undanförnum leikjum. „Jú. Ég vona bara að ég verði í góðu hlutverki áfram. Þetta er auðvitað gaman og eitthvað sem maður vinnur að. Mitt markmið og okkar er að ná eins gott og við getum sem lið," sagði Katrín og viðurkenndi að stelpurnar hafi verið orðnar taugaóstyrkar þegar gestirnir jöfnuðu metin. „Ég get ekki logið því að það fór um okkur þegar þær jöfnuðu 2-2. En þetta gerðist líka í fyrri leiknum. Fáum tvö mörk á okkur eftir að hafa skorað tvö, hvers vegna veit ég ekki en við þurfum að skoða það. Þær eru með ágætislið en við erum með betra lið og kláruðum þetta."Snjólaug á Egilsstöðum hvatningin Tónlistarmyndband með íslensku landsliðsstelpunum sem birtist á veraldarvefnum í gærkvöldi hefur vakið mikla athygli. Í laginu syngja Rakel Hönnudóttir og Mist Edvardsdóttir lag gegn einelti en landsliðskonurnar birta öll skilaboð í baráttunni gegn samfélagsmeininu. „Ég var á Facebook fyrir um mánuði síðan. Þar setti stelpa að nafni Snjólaug frá Egilsstöðum inn stöðuuppfærslu þess efnis að hún væri lögð í einelti. Ég sendi henni skilaboð og velti svo fyrir mér að við stelpurnar í landsliðinu værum stór hópur og fyrirmynd á Íslandi sem gæti haft jákvæð áhrif," sagði Katrín sem samdi lagið. „Við höfum ekki mikinn pening á milli handanna en getum gert hluti sem kosta ekki mikinn pening. Þá kom ég með þá hugmynd um að setja saman lag, gera myndband og gefa tilbaka til samfélagsins. Eins og þið sjáið gaf samfélagið okkur stóra gjöf í dag og er stór ástæða þess að þetta gekk upp hjá okkur," sagði Katrín og horfði upp í áhorfendastúkuna. Textann að lagi Katrínar má sjá að neðan en lagið má sjá hér eða í spilaranum hér fyrir ofan. Óhætt er að segja að um frábært framtak sé að ræða hjá stelpunum og Katrín kann greinilega vel þá list að yrkja. „Upp á síðkastið hef ég gert svolítið af því. Núna er ég atvinnumaður í fótbolta og hef svo mikinn tíma á milli handanna. Svo var ég internetslaus um daginn og þá þurfti maður bara að búa eitthvað til. Þetta gekk bara upp"TextinnÉg kem heim úr skólanum, mér líður ekki vellít í spegilinn og átta mig ekki á því hver ég er.Ég er ekki eins og hinir, ég lít öðruvísi út,hegða mér á annan hátt, en samt er staðreyndin þó súað ég er bara ég, þarf ég að breyta hver ég er?til þess eins að fitta inn og fá að vera með.Hvað sem ég geri sjá þau flísina í auga mínuen ekkert þeirra tekur eftir bjálkanum í sínu.Það er til tvenns konar fólk, þeir sem hífa þig uppog þeir sem rífa þig niður.Þeir reyna að rífa þig niður til að hífa sig uppog þeir sem hífa þig upp eru alvöru vinir.Ég læt þetta ekki á mig fá.Ég er sterkari en það, stend upp fyrir sjáfri mér.Það dýrmætasta sem ég áer þetta líf og ég mun lifa því eins og ég er.Þegar á endann er kominn vinna þeir sem breyta rétt.Þú sérð samt fljótt að þessi leið er ekki alltaf létt.Sá sem ranglæti mætir ekki, fylgir alltaf hinum.Hjálpar ekk' og stendur ekki upp á móti vinum.Mótlæti myndar manninn, sýnir úr hverju hann er gerður.Ekki gefast upp þó heimurinn sé stundum harður.Bítt'í skjaldarrendur og treystu eigin hjartafyrr en varir muntu sjá að þú átt framtíðina bjarta.Það er til tvenns konar fólk, þeir sem hífa þig uppog þeir sem rífa þig niður.Þeir reyna að rífa þig niður til að hífa sig uppog þeir sem hífa þig upp eru alvöru vinir.Ég læt þetta ekki á mig fá.Ég er sterkari en það, stend upp fyrir sjáfri mér.Það dýrmætasta sem ég áer þetta líf og ég mun lifa því eins og ég er.
Fótbolti Mest lesið Sló í trérót og þurfti að draga sig úr keppni Golf Krefjast tíu milljóna dollara til allra aðildarríkja FIFA Fótbolti JJ Gabriel mættur til Barcelona Enski boltinn Selfyssingar skoruðu öll mörkin í úrslitaleiknum Íslenski boltinn Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Körfubolti „Algjör óþarfi fyrir dómarann að vera búa til svona úlfalda úr mýflugu“ Sport „Meira sem að þeir þurfa að hafa áhyggjur af hjá okkur“ Íslenski boltinn Uppgjörið:Fram - Víkingur 2-2 | Tvö rauð á teymi Víkinga í dramatísku jafntefli Íslenski boltinn Flestir Íslendingar halda með Liverpool Enski boltinn Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 4-3 | Bikarþynnka í Vestmannaeyjum Íslenski boltinn Fleiri fréttir JJ Gabriel mættur til Barcelona Krefjast tíu milljóna dollara til allra aðildarríkja FIFA Selfyssingar skoruðu öll mörkin í úrslitaleiknum Uppgjörið:Fram - Víkingur 2-2 | Tvö rauð á teymi Víkinga í dramatísku jafntefli Olise skoraði þrennu í stórsigri Bayern München „Töpuðum á réttan hátt” „Fannst á tímabili eins og við gætum spilað í 200 mínútur án þess að skora” Hlín hafði betur í Íslendingaslagnum í Svíþjóð Brentford taplausir eftir sigur á bitlausu liði Chelsea „Meira sem að þeir þurfa að hafa áhyggjur af hjá okkur“ Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 4-3 | Bikarþynnka í Vestmannaeyjum Uppgjörið: FH - Stjarnan 1-0 | Halda titilbaráttunni jafnri Richarlison hafnaði Vasco da Gama: „Við reyndum allt“ Flestir Íslendingar halda með Liverpool Myndavélar settar upp eftir skemmdarverkin og allt klárt fyrir risaleik Jón Dagur breyst úr floppi í stjörnu „Keyra á ljósabekkina“ fyrir úrslitaleikinn Skotin flugu milli Bolla og Hjamma Freyr fái fólk til að trúa: „Eitthvað mjög sérstakt að gerast hérna“ Ngumoha, Palmer og Alexander-Arnold í hópnum sem mætir Spáni Veður í Infantino: „Hegðun sem ógnar tilvist leiksins“ Isak bjartsýnn: „Myndi aldrei hugsa þannig“ Peningaflóð til norska sambandsins eftir róður Haalands og félaga FH-stelpur meistarar en KSÍ kom ekki með bikar Uppgjörið: Breiðablik - Grindavík/Njarðvík 4-1| Breiðablik kláraði þetta í fyrri hálfleik „Vitum hvernig fótbolta við viljum spila og hvað við stöndum fyrir“ Markaveislur og stórsigrar í Evrópudeildinni Ungstirni Manchester City tryggðu liðinu stórsigur Infantino beðinn um að gefa upp gögn um sölu heimsmeistaramótsins Orri grátlega nálægt því að tryggja stig fyrir Real Sociedad Sjá meira