Erlent

Sandy stefnir á austurströnd Bandaríkjanna

Fellibylurinn Sandy stefnir nú á austurströnd Bandaríkjanna og er talinn geta ógnað lífi fólks sem þar býr.

Sandy hefur þegar kostað 20 manns lífið á ferð sinni yfir Jamaíka, Kúbu og Bahamaeyjar. Aðeins hefur dregið úr vindstyrk Sandy og hann er aftur orðinn að fyrsta stigs fellibyl með vindhraða í kringum 40 metra á sekúndu.

Mikið úrhelli er nú á Flórída í undanfara Sandy og þar hefur verið gefin út viðvörun vegna fellibylsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×