Erlent

Skóli rýmdur í Árósum vegna sprengjuhótunar

Búið er að rýma Handelshöjskolen eða viðskiptaskólann í Árósum í Danmörku vegna sprengjuhótunnar.

Öllum nemendum skólans var skipað að yfirgefa bygginguna skömmu eftir klukkan 10 í morgun að staðartíma. Lögreglan er mætt á staðinn með sprengjuleitarhunda og stendur nú yfir leit að hugsanlegri sprengju í skólanum.

Skólinn er staðsettur við Venstre Ringgade í borginni skammt frá háskólanum í Árósum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×