Erlent

Hassframleiðsla olli sprengingu í íbúð á Lollandi

Íbúð í Maribo á Lollandi í Danmörku sprakk í loft upp þegar 18 ára gamall drengur var þar að búa til hass úr kannabistoppum og laufum.

Hann slasaðist alvarlega en lögreglan segir að enn verr hefði getað farið ef gluggar íbúðarinnar hefðu ekki gefið sig í sprengingunni.

Drengurinn notaði kveikjaragas við þessa iðju sína en gætti ekki að því að rafmagnsofn með opnum glóðum var á fullu í íbúðinni og kveikti ofninn í gasinu. Drengurinn var fluttur á Rigshospitalet en mun ekki í lífshættu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×