Erlent

Kristnir koptar í Egyptalandi velja páfa í dag

Hinir kristnu koptar í Egyptalandi munu velja sér nýjan páfa í dag.

Valið fer þannig fram að trúarráð koptanna velur þrjá menn og skrifar nafn þeirra á miða sem komið verður fyrir í krukku á altari St Marks dómkirkjunnar í Kaíró. Síðan mun barn sem bundið er fyrir augun á draga einn af miðunum úr krukkunni.

Sá sem á nafnið á miðanum verður næsti páfi koptanna en formleg útnefning hans fer svo fram þann 18. nóvember n.k.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×