Erlent

Fordæma dóminn yfir vísindamönnum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Gríðarleg eyðilegging varð í skjálftanum.
Gríðarleg eyðilegging varð í skjálftanum. Mynd/ AFP.
Alþjóðleg samtök um jarðskjálftafræði og innri gerð jarðar (IASPEI) fordæmir dóm ítalskra dómstóla yfir sjö jarðfræðingum í l'Aquila á Ítalíu í tilkynningu sem þeir hafa sent frá sér. Dómurinn dæmdi mennina í síðustu viku fyrir manndráp af gáleysi, en mannfall og gríðarleg eyðilegging varð vegna skjálftanna.

Í tilkynningunni frá Samtökunum sem birtist á vef þeirra segjast þau ekki lýsa skoðunum á réttarkerfinu á Ítalíu né ætli þau að tjá sig um dóminn í smáatriðum. Réttarhöldin setji hins vegar slæmt fordæmi en með þeim hafi jarðvísindamennirnir verið gerðir ábyrgir fyrir atburðum sem með réttu verði einungis raktir til illa byggðra húsa.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×