Erlent

Neistaflug í sjónvarpseinvígi varaforsetaefnanna

Óhætt er að segja að bandarískum sjónvarpsáhorfendum hafi verið boðið upp á mikið neistaflug þegar varaforsetaefnin Joe Biden og Paul Ryan tókust á í fyrsta sjónvarpseinvígi sínu.

Þeir hjóluðu hvor í annan þegar þeir ræddu málefni á borð við þjóðaröryggi, efnahagsmál, skatta og heilbrigðismál. Biden var mun æstari í málflutningi sínum en Ryan hélt ró sinni að mestu leyti.

Eftir einvígið voru pólitískir sérfræðingar vestan hafs nær sammála um að einvígið hafi endað með jafntefli.

Hér fyrir ofan má horfa á sjónvarpseinvígið í heild sinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×