Weiwei segir Nóbelsverðlaunin í bókmenntum vera brjálæði 12. október 2012 07:20
Hinn þekkti kínverski lista- og andófsmaður Ai Weiwei segir að það hafi verið brjálæði að veita kínverska rithöfundinum Mo Yan bókmenntaverðlaun Nóbels í ár. Óhætt er að segja að ákvörðun sænsku Nóbelsnefndarinnar að veita Mo Yan verðlaunin hafi komið verulega á óvart enda var nafn hans hvergi að finna í vangaveltum sérfræðinga um hverjir myndu fá þessi virtu bókmenntaverðlaun í ár. Danska blaðið Politiken ræðir við Ai Weiwei um málið en hann skilur hvorki upp né niður í ákvörðun Nóbelsnefndarinnar. Weiwei segir að fjöldi frambærilegra kínverskra rithöfunda vinni við mjög erfiðar aðstæður vegna ritskoðunar og hafi því ekki frið til að skapa bókmenntaverk sín. Þá sitji margir þeirra í fangelsum vegna skrifa sinna. Weiwei segir að verðlaunaveitingin sýni að bókmenntaakademían sé ekki í neinum tengslum við raunveruleikann og að málið allt lykti af spillingu. Mo Yan hafi gætt þess að vera innan þeirra marka sem ritskoðun kínverskra stjórnvalda hefur sett honum. Weiwei segir einnig að Nóbelsverðlaunin hefðu átt að fara til rithöfundar sem ber virðingu fyrir baráttu fólks fyrir mannréttindum og tjáningarfrelsi.
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Innlent Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Innlent Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Innlent Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Fleiri fréttir Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Sjá meira