Erlent

Brahimi reynir að miðla málum

Borgararstríð hefur ríkt í Sýrlandi undanfarnar vikur. Þessi mynd var tekin nokkuð áður en átökin brutust endanlega út.
Borgararstríð hefur ríkt í Sýrlandi undanfarnar vikur. Þessi mynd var tekin nokkuð áður en átökin brutust endanlega út.
Lakhdar Brahimi, erindreki Sameinuðu Þjóðanna og Arabandalagsins í Sýrlandi, er kominn til Tyrklands. Hann mun funda með ráðamönnum í Ankara, höfuðborg Tyrklands, seinna í dag.

Það hefur andað köldu milli Sýrlands og Tyrklands síðustu daga eða frá því að fimm manns létust í sprengjuárás sýrlenska stjórnarhersins á tyrkneski grundu.

Þá stöðvuðu Tyrkir sýrlenska farþegaflugvél sem var á leið frá Rússlandi fyrr í vikunni og var því haldið fram að hergögn væru um borð.

Yfirvöld í Rússlandi og Sýrlandi hafa vísað því bug. Brahimi mun því reyna að miðla málum milli landanna. Að því loknu mun hann ferðast til Sýrlands og reyna að hefja friðarumleitanir milli uppreisnarmanna og yfirvalda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×