Erlent

Írar herða á kröfum um eignarhald yfir Hatton Rockall

Írar hafa hert á kröfum sínum um eignarhaldið á Hatton Rockall klettinum í miðju Atlantshafinu en auk Íra gera Íslendingar, Bretar og Danir, fyrir hönd Færeyinga, kröfu um eignarhaldið á þessum kletti.

Írska blaðið Irish Indepentent segir frá því að um helgina hafi herskip úr írska flotanum komið írska fánanum fyrir á toppi Hatton Rockall.

Þessi klettur er í um 230 sjómílna fjarlægð norðvestur af Írlandi en á svæðinu í kringum hann er talið að finna megi olíulindir sem eru fleiri hundruð milljarðar króna að virði.

Bretar gerðu tilkall til Hatton Rockall árið 1955 og þá var breska fánanum komið fyrir á toppi klettsins. Síðan hafa staðið yfir alþjóðlegar deilur um eignarréttinn á Hatton Rockall.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×