Erlent

Sprengingar og skothríð í einni borga Nígeríu

Miklar sprengingar og skothríð hafa heyrst í borginni Maiduguri í norðurhluta Nígeríu í gærkvöldi og nótt en þar hafa meðlimir múslímsku öfgasamtakanna Boko Haram herjað á borgarbúa að undanförnu.

Í frétt um málið á vefsíðu BBC segir að óljósar fréttir hafi borist um ástandið í borginni en talið er að tíu manns hafi fallið og að barnaskóli og útvarpsstöð standi ljósum logum. Hermenn hafa girt af miðhluta borgarinnar.

Fyrr í þessum mánuði kostaði árás á sjúkrahús 30 borgarbúa lífið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×