Erlent

Obama mælist aftur með meira fylgi en Romney

Barack Obama Bandaríkjaforseti mælist nú aftur með meira fylgi en Mitt Romney í daglegum skoðanakönnunum sem gerðar eru af Reuters og Ipsos.

Fyrir kappræðu þeirra í sjónvarpi í nótt mældist Obama þannig með 46% fylgi en Romney með 43%. Eftir fyrstu kappræður þeirra mældist Romney með meira fylgi en Obama en forsetinn hefur síðan stöðugt saxað á það forskot.

Í reglulegri könnun Gallup meðal skráðra kjósenda eru þeir með jafnt fylgi eða 47% hvor. Og hjá Gallup heldur Romney enn forystunni meðal líklegra kjósenda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×