Góður sigur Íslands í Úkraínu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 20. október 2012 00:01
Ísland er í góðum málum eftir fyrri leik sinn gegn Úkraínu í umspili fyrir EM 2013 í Svíþjóð. Stelpurnar okkar unnu 3-2 sigur á útivelli í morgun. Íslendingar komust í 2-0 forystu í fyrri hálfleik með mörkum Katrínar Ómarsdóttur og Hólmfríðar Magnúsdóttur. Heimamenn minnkuðu hins vegar metin í lok fyrri hálfleiks og skoruðu svo jöfnunarmark í upphafi síðari hálfleiksins. Margrét Lára Viðarsdóttir reyndist svo hetja íslenska liðsins er hún skoraði sigurmarkið á 64. mínútu. Bæði lið fengu færi til að skora eftir þetta en niðurstaðan varð 3-2 sigur Íslands. Síðari leikurinn fer fram á Laugardalsvelli á fimmtudagskvöldið og hefst hann klukkan 18.30. Fylgst var með leiknum hér á Vísi.Leik lokið: Frábær sigur Íslands staðreynd í Sevastopol. Ísland fer í seinni leikinn með eitt mark í plús og þrjú útivallarmörk.64. mínúta: 3-2 fyrir Íslandi! Margrét Lára Viðarsdóttir endurheimtir forystuna fyrir íslenska liðið. Góðar fréttir af stelpunum okkar.51. mínúta: Úkraína jafnar, 2-2. Tetyana Chorna skorar beint úr aukaspyrnu sem dæmd er við eitt vítateigshornið.46. mínúta: Síðari hálfleikur hafinn í Úkraínu.Fyrri hálfleik lokið: Ísland byrjaði frábærlega í leiknum og skoraði tvö mikilvæg útivallarmörk. Þó svo að Úkraína hafi minnkað muninn er útlitið enn mjög gott.39. mínúta: 2-1 fyrir Ísland. Úkraína minnkar muninn en það gerði Tetyana Romanenko. Hún renndi boltanum fram hjá Þóru í marki Íslands.36. mínúta: Margrét Lára komst í gegn en skot hennar fór yfir mark Úkraínumanna.30. mínúta: Margrét Lára í dauðafæri fyrir íslenska liðið en ekki kom þriðja markið.25. mínúta: 2-0 fyrir Ísland. Þetta gengur frábærlega. Hólmfríður Magnúsdóttir hefur aukið forystu Íslands í leiknum.5. mínúta: 1-0! Staðan er orðin 1-0, Íslandi í vil. Katrín Ómarsdóttir skoraði mark Íslands.1. mínúta: Þá er leikurinn hafinn í Úkraínu. Margrét Lára dæmd rangstæð strax í upphafi leiks.Fyrir leik: Facebook-síða KSÍ segir frá því að þær Dagný Brynjarsdóttir og Katrín Ómarsdóttir hafi verið nokkuð slappar í morgun en að báðar verði samt á skýrslu í dag. Dagný er á bekknum.Fyrir leik: Byrjunarlið Íslands er þannig skipað: Þóra Björg - Dóra María, Sif, Katrín J., Hallbera - Edda, Sara Björk, Katrín Ó - Hólmfríður, Margrét Lára, Fanndís.
Fótbolti Mest lesið Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íslenski boltinn Hleypur aldrei aftur eftir hjartastopp Sport Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Handbolti Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM Fótbolti Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Fótbolti Aron Einar skoraði í fyrsta leik Fótbolti „Til skammar á Bestu deildar stigi að vökva ekki völlinn“ Íslenski boltinn Enski boltinn hefst í kvöld Fótbolti Íhuga að þvinga fram fordæmalausa kosningu um vantraust Fótbolti Fleiri fréttir Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Arsenal - Coventry City | Titilvörn Englandsmeistaranna hefst Real Betis - Real Sociedad | Tímabilið hefst hjá Orra Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA FH - Víkingur R | Nýta þær sér mistök meistaranna? Þór/KA - Valur | Valskonur í færi á að koma sér úr fallsæti ÍBV - Þróttur | Geta lyft sér upp í þriðja sæti Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM BBC birtir innslag um sögulegt einvígi KR og Liverpool Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íhuga að þvinga fram fordæmalausa kosningu um vantraust Konsa orðinn leikmaður Arsenal Sjáðu mörkin: Útsendari FH refsaði toppliðinu og Ása Björg með sýningu Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Enski boltinn hefst í kvöld Liverpool fær höfnun frá Brighton Aron Einar skoraði í fyrsta leik „Hún fær fullt frelsi til að fara í öll skógarhlaup sem henni dettur í hug“ Mikael kom inn af bekknum í slæmu tapi gegn Benfica „Til skammar á Bestu deildar stigi að vökva ekki völlinn“ „Einn versti hálfleikur sem ég hef séð liðið spila“ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Fram 4-0 | Unnu Fram í þriðja sinn í sumar Brann náði í frábær úrslit ytra Elías Rafn hélt hreinu og Midtjylland í kjörstöðu Uppgjörið: Stjarnan - Breiðablik 2-0 | Garðabærinn með hreðjatak á Kópavogi Rúnar Alex í markinu og hélt hreinu Sjá meira